miðvikudagur, 28. ágúst 2013

Snickers kaka

Útbjó snilldar hráfæðisköku um daginn. Hún kallast Snickers kaka og bragðast hún nánast eins og snickers nema ekki eins sæt :)
Uppskriftin er mjög auðveld og það tekur alls ekki langan tíma að útbúa kökuna - en það er mikilvægt að eiga góða matvinnsluvél!

Snickers kaka
Hráfæðiskaka í þremur lögum.

Botninn

1 bolli sesamfræ og möndlur
1 bolli döðlur

Legg bæði möndlurnar og döðlurnar í bleyti í smá stund. Skelli síðan öllu í matvinnsluvél og hræri allt saman. Set þetta síðan form og passa að þjappa vel. Set það síðan í frystinn á meðan ég undirbý næsta lag.

Millilag

½ bolli kókosolía
1 bolli hnetusmjör (eða um 200g)
2 bollar kasjúhnetur
½ bolli agave síróp

Legg kasjúhneturnar í bleyti í smá stund. Skelli þessu líka í matvinnsluvélina (algjör óþarfi að þvo blandarann á milli). Blandið öllu saman, takið botninn úr frysti og skellið millilaginu á og dreifið því vel. Skellið þessu svo í frysti á meðan þið undirbúið lokalagið.

Lokahnykkurinn
¼ bolli agave síróp
½ bolli kókosolía eða kakósmjör (ég notaði kókosolía)
½ bolli kakó

Bræði kókosolíuna í krukkunni yfir heitu vatnsbaði. Blandaði öllu saman, kókosolíunni, sírópinu og kakóinu. Dreifi þessu yfir kökuna og geymi í frysti í nokkrar klst. 
Voilà!






Kakan er alveg ótrúlega bragðgóð en mjög saðsöm og maður getur ekki borðað mikið af henni. Hún er best á meðan hún er enn smá frosin og hún verður frekar slepjuleg ef maður leyfir henni að þiðna alveg. Þeyttur rjómi er mjög góður með en ekki nauðsynlegur því kakan er mjög góð ein og sér.

- Eva

Engin ummæli :

Skrifa ummæli

Blog Design by Get Polished