föstudagur, 23. ágúst 2013

Meira blogg & Reykjavíkurmaraþon !




Kæru lesendur - nú fer bloggið að fara að meira flug þar sem sumartíminn og minn tími hefur farið í það að hugsa um molana mína  - hún EVA Sigurðardóttir ætlar að halda áfram með okkur í vetur en hún hefur sett inn nokkur blogg hér á síðuna og vonandi verða þau enn fleiri í vetur !

núna er rútínan að fara í gang og ég fer að hafa meiri tíma í að skrifa og hlakkar mig mikið til að gera síðuna enn flottari en hún er í dag ! Ef þú ert með hugmyndir fyrir síðuna mína endilega hafðu samband við mig.

En  að öðru ég og eldri strákurinn minn ætlum að enda sumarfríið með því að hlaupa til styrktar Einstökum börnum... við ætlum að fara 3km saman þar sem hann er enn of ungur fyrir lengri vegalegndir og þá hef ég líka smá meiri tíma til að æfa mig fyrir lengri vegalengd hahaha :) Við erum í því félagi og þykir okkur óendanlæga vænt um þetta félag og viljum við því hlaupa til styrktar þeim.

Ef þú hefur tök á að styrkja okkur værum við óendanlega þakklát :)
Ég stofnaði hlaupahóp handa okkur og HÉR er hægt að heita á okkur !

Það mega ALLIR skrá sig í hlaupahópinn okkar sem vilja :)

með fyrirfram þökk.
Þórunn Eva

Engin ummæli :

Skrifa ummæli

Blog Design by Get Polished