fimmtudagur, 30. apríl 2015

Það eru til GF matarlitir á Íslandi

Ég er hætt að vera despó.. ég fann loksins glútenfría matarliti svo ég get haldið áfram með bókina... googlaði eins og ég veit ekki hvað, hringdi á fullt af stöðum, sendi mail til útlanda og BINGÓ.. 








Ég fékk staðfestingu frá verksmiðjunni úti að Americolor matarlitirnir í Allt í köku eru glútenfríir. Ég skottaðist því til þeirra í dag og fékk mér nokkra liti til að geta haldið áfram með bókina. Þetta eru hlutir sem fæstir eru að hugsa um þegar verið er að baka. 






Þær eru líka með kökumix sem ég nældi mér að sjálfsögðu í og ætla að prufa um helgina og sýni ég ykkur þegar það er orðið klárt. Þær eru með bragðefni sem eru glútenfrí, sykurmassinn er glútenfrír líka - ég gæti haldið endalaust áfram.  

Ég er að elska það að það sé hægt að fara nánast út um allt orðið og ná sér í glútenfríar vörur.. Allir að skella sér til Katrínar í Allt í köku því hún er algjör snillingur. 


xoxo
Þórunn Eva

Engin ummæli :

Skrifa ummæli

Blog Design by Get Polished