föstudagur, 18. mars 2016

- One Próteinstykki - Oh Yeah -

Ég hef mikið leitað af milli máli sem er hollt og ég get haft með mér hvert sem er án þess að ég þurfi að hafa fyrir því. Ég hef hreinlega bara ekki alltaf allan tímann í heiminum þó svo ég reyni að vera skipulögð. Það kemur upp allskonar óvænt og þá er ég kannski ekki tilbúin með nesti þegar ég hleyp út heima. Stundum er ég líka bara löt og nenni engann vegin að græja mér neitt til að hafa með í nesti. 

One Próteinstykkin sem fást í Fintess Sport eru klárlega komin á uppáhalds listann því þau eru glútenfrí. Ég hafði samband við Fitness Sport og fékk hjá þeim allar bragðtegundir til að smakka og segja ykkur svo hvað mér finnst. Ég ELSKA þau. Stundum líður mér eins og ég sé að stelast í nammi en ég er bara ekkert að því. Þetta er hin fínasta næring og hið besta millimál á annasömum degi eða degi sem er svo latur að ég nenni ekki að hreyfa litla putta þegar kemur að því að skræla mér epli. Jáh ég er mannleg og nenni sko ekki að græja mér prótein lummur, venjulegar lummur eða skera niður grænmeti og ávexti alla daga eins og kannski lítur út á blogginu og snappinu... 

 Ég er ekki að þessu til að fá fría vöru heldur er ég alltaf að leita leiða til að létta mér sjálfri lífið og ykkur í leiðinni. 
Það er hræðilega vont að vera svöng/svangur og geta hvergi farið og náð sér í eitthvað smá til að redda sér. Því er snilld að eiga nokkur í hanskahólfinu í bílnum eða í töskunni til að grípa í. Ekki skemmir fyrir hvað þau eru hrikalega góð. 


Mín uppáhalds er sítrónu stykkið og kókos stykkið enn sem komið er en mér finnst þau öll sjúklega góð. Það eru til 8 bragðtegundir og er hægt að skoða þau og panta HÉR.

Á sumrin fer ég oft á Helgafellið og elska að taka með mér eitthvað svona smá til að narta í þegar upp er komið og sé ég sko alveg fyrri mér að taka með mér ONE próteinstykki þangað upp. Mitt markmið er að fara 2x í viku upp í sumar eins og ég gerði síðasta sumar og lofa ég að taka mynd af einu stykki á toppnum með mér. 



Engin ummæli :

Skrifa ummæli

Blog Design by Get Polished